Um Maranda
Tengjum Ísland við alþjóðlegar orkulausnir

Hlutverk
Staðbundin ábyrgð, alþjóðleg tækni
Með samstarfi við Huawei Digital Power veitir Maranda aðgang að alþjóðlega prófuðum lausnum sem eru aðlagaðar íslenskum aðstæðum. Áhersla er lögð á áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og lausnir sem standast kröfur innviða og langtímareksturs.

Viðskiptavinir
Lausnir fyrir innviði og orkufrekan rekstur
Maranda vinnur með:
Orkufyrirtækjum
Sveitarfélögum
Rekstraraðilum innviða
Iðnaði og þjónustufyrirtækjum
Aðilum sem byggja upp hleðsluinnviði eða gagnaver
Starfsfólk

Magnús Bjarnason
Framkvæmdastjóri
Magnús hefur víðtæka reynslu af stjórnunar- og ráðgjafarstörfum á sviði orku, fjármála og alþjóðlegs reksturs. Hann er meðeigandi í MAR Advisors og hefur gegnt lykilstöðum hjá utanríkisþjónustunni, Íslandsbanka, Landsvirkjun, Icelandic Group og Kviku banka.

Gústav Arnar Magnússon
Viðskiptaþróun og sala
Gústav vinnur að uppbyggingu samstarfa og nýrra verkefna á sviði orkulausna og rafhleðsluinnviða. Hann er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur reynslu af viðskiptaþróun í alþjóðlegu umhverfi.

Dr. Anton Harder
Stjórnarmaður
Dr. Anton Harder er sérfræðingur í Kína og Indlandi með víðtæka reynslu úr viðskiptum, rannsóknum og ráðgjöf. Hann lauk doktorsprófi frá London School of Economics þar sem hann hefur kennt nútíma sögu og ráðlagt fyrirtækjum og hugveitum um markaðsinngöngu, pólitíska áhættu og samstarfsverkefni í Kína og á Indlandi. Dr. Harder bjó í Kína í tólf ár og talar og skrifar kínversku reiprennandi.

Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson
Stjórnarmaður
Dr. Huginn Freyr býr yfir nær tveggja áratuga reynslu af ráðgjöf og greiningu fyrir opinbera aðila og fyrirtæki. Sérsvið hans eru tæknibreytingar, stefnumótun og áhrif nýrrar tækni á atvinnulíf og samfélag.